Aron Ingi Smárason
Dýrahjúkrunarfræðinemi
Aron er aðstoðarmaður dýralæknis og hóf störf hjá Gæludýraklíníkinni sumarið 2024. Hann hefur mikla reynslu af umönnun og meðhöndlun dýra, en áður starfaði hann í nokkur ár sem dýrahirðir í Húsdýragarðinum.
Aron er metnaðarfullur, glaðlyndur og nærgætinn í samskiptum við bæði dýr og eigendur. Hann hefur mikinn áhuga á dýrum og býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu sem nýtist vel í daglegu starfi á Gæludýraklíníkinni.
Aron stundar nú nám í dýrahjúkrunarfræði í Danmörku og stefnir á að ljúka náminu vorið 2029.





















