Á Gæludýraklíníkinni finnur þú dýralækni sem hefur sérstakan áhuga á augnsjúkdómum dýra og hefur sótt fjölmörg námskeið erlendis undanfarin ár og vinnur nú hörðum höndum að sérnámi sínu í augnlækningum, sjón og augnsköðum.
Þá hefur klíníkin fjárfest í besta mögulega búnaði til greiningar á augnsjúkdómum.
Dæmi um augnsjúkdóma geta verið sýkingar, augnskekkja, ský á auga, gláka og rýrnun eða skemmdir í augnbotnum. Slíkir sjúkdómar og kvillar geta verið arfgengir og algengari í sumum dýrategundum en öðrum. Sérhæfður dýralæknir sjúkdómsgreinir og meðhöndlar þessa sjúkdóma, framkvæmir augnaðgerðir og skrifar upp á lyf sé þess þörf.
Augnlækningar krefjast mikils áhuga og þekkingu á vísindum og líffræði. Vandvirkni er afar mikilvæg auk þolinmæði og nákvæmnis vinnu.
Helstu verkefni augnlæknis:
- greining og meðhöndlun augnsjúkdóma
- fylgja eftir greiningu með lyfjameðferð eða skurðaðgerð
- ráðgjöf og fræðsla
- rannsóknir á augnsjúkdómum
- Slys á augum, greining og meðhöndlun, skurðaðgerðir
- eftirfylgni skurðaðgerða vegna augnskaða