Grunnnámskeið I / Hvolpanámskeið
Basic Course for puppies: information in English
Næstu námskeið:
SUÐURLAND 10. okt – 4. nóv 2023 > skráning á kristin@gdk.is
Um námskeiðið:
Notast er við jákvæðar styrkingar til að kalla fram æskilega hegðun.
Námskeiðið er 8 skipti verkleg: 1-1,5 klst hvert skipti + Veffyrirlestrar sem nemendur geta hlustað/horft á heima. Samtals 20 kennslustundir.
Námskeiðið fer fram innan- og utandyra en amk. 1 kennslustund er notuð í að fara út og æfa i raunaðstæðum. Í lok hverrar kennslustundar er lögð fyrir heimavinna.
Árangursríkar aðferðir kenndar við að kenna hvolpum góða siði líkt og:
- komdu / innkall og hvernig á að ná sambandi við hundinn sinn
- stýrum athyglinni
- sestu og sitja kyrr
- leggstu og liggja kyrr
- þægileg taumganga og notkun taums sem öryggistækis
- bíddu og fjallað um neyðarstopp
- leita og mikilvægi þess að þjálfa nefið
- sækja og skila og tengingar þess við innkallsæfingar og orkulosun
- bælið og griðarstaður hundsins
Fyrirlestrar eru á vefnum og geta þátttakendur hlustað á eigin tíma samhliða námskeiðinu, hver fyrirlestur er um 60- 90 mín. Samhliða veffyrirlestri er gott að kenna hundinum slökun – nánar rætt í tíma. Þá eru einnig stuttir örfyrirlestrar í hverjum tíma, ca 10-15 mín. þar sem hvolpinum verður uppálagt að slaka sér og hvílast.
Farið er m.a. yfir eftirfarandi atriði:
- Reglugerðir um hundahald : Hveragerði og Ölfus, Reykjavík eða í því sveitarfélagi sem námskeiðið er haldið/þátttakendur eru frá
- Umhirða felds, húðar, nagla, eyrna og tanna. Fóðrun og annað sem snýr að velferð dýrsins.
- Merkjamál hunda, hvernig hundar tjá sig. Hvenær hundi líður illa, hvenær hann gæti bitið. Hvernig lesa skal vanlíðan og hvernig bregðast skal við.
- Þroskaskeið hunda. Hvernig hundar læra og hvenær við erum með athyglina þeirra til þess að geta kennt þeim. Hvernig umhverfið mótar þá og hvernig við getum stýrt umhverfinu okkur í hag.
- Hvað er stress og hvenær er það að hjálpa okkur/vinna á móti okkur. Ólíkar hundategundir skoðaðar og bornar saman.
- Hvernig má lágmarka stressi í hundum
- Árangursríkar hundaþjálfunaraðferðir ræddar og útskýrðar.
- Ábyrgð hundaeigandans gagnvart dýrinu og almennt um dýravelferð.
- Fjölskylduumhverfið: Börn og hundar, hunda og gamalt fólk og griðarstaður hunda á heimilinu
- Að kynnast ókunnugum hundi, að hitta aðra hunda og læra að umgangast þá
- Hvers vegna hvolpar þurfa að læra að dreifa huganum og ná ró í ókunnum aðstæðum
- Dýralæknir, gestafyrirlestur: algengustu vandamál tengd hundahaldi, hiti, bólusetningar, örmerki ofl. Áhugavert.
Námskeiðið gefur afslátt af hundaleyfisgjöldum sveitarfélaga.
Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis:
- Nammi í poka, mjög smáa bita
- 1 leikfang sem hvolpurinn hefur gaman að t.d. bolta í bandi, kaðal eða álíka
- Kúkapoka
- Taum, lágmark 1,2 m helst amk 2m
- Hálsól og/eða beisli
Bókun á námskeið og greiðsla námskeiðsgjalds:
Verð á námskeið 48.500 kr fyrir hund, hverjum hundi mega fylgja 2 þátttakendur.
Skráning hér:
Hámark 6-8 hundar á námskeiði. Ítarlegri lýsing á námskeiði hér.
Hvolpar/hundar þurfa að vera bólusettir (amk. búnir með 2 af 3 sprautum) og ormahreinsaðir.
Námskeiðsgjald óskast greitt strax við skráningu.
Sé meira en 4 vikur í námskeið telst skráning staðfest með skráningargjaldi sem er 50% af námskeiðsgjaldinu. Staðfestingargjald er óendurkræft. Uppgjör á námskeiðsgjaldinu skal fara fram í síðasta lagi í fyrsta tíma námskeiðs.
Öll námskeið hér að ofan eru einnig í boði sem einkanámskeið en ákveðnum hluta námskeiðanna er eðli málsins samkvæmt ekki hægt að ljúka nema í hóptíma með öðrum hundum. Verð á einkanámskeiði fer eftir námskeiði og hundi.